Efniviður : Endurunnið hjólbarðagúmmí frá Gúmmívinnslunni og dufthúðað ál.
“Birta” er íslensk framleiðsla og hönnun.
Um er að ræða kertastjaka fyrir útikerti/leiðisljós, t.d. á leiði en einnig inn á heimili, við innganga og tröppur svo eitthvað sé nefnt.
Efniviðurinn er endurunnið gúmmí frá Gúmmívinnslunni á Akureyri og ál sem er dufthúðað og því sérlega sterkt og endingargott.
Kostir “Birtu” eru þessir:
Gúmmíið undir standinum verndar viðkvæma fleti eins og trépalla, málaðar tröppur og stéttar.
Eins er standurinn þungur og því mjög stöðugur og traustur.
Stærð:
Hæð: 180 mm
Breidd: 140 mm