Marlene samfestingur navy blár
Lýsing
Marlene samfestingarnir eru dásamlega klæðilegir með síðum ermum, framstykki sem fellur yfir hvort annað og myndar fallegt V-hálsmál og vösum.
Eins er teygja og rykking í mittinu og örlítil vídd sem felur svolítið magasvæðið en ýkir um leið mittið. Efnið er teygjanlegt og þungt sem fellur vel!
Buxurnar eru beinar og frekar víðar sem okkur þykir einstaklega dömulegt en hann lengir og heldur vel um kvenlegar línurnar!
Þetta er klassísk og tímalaus flík sem myndi sóma sér vel í hvaða skáp sem er!
Marlene samfestingarnir koma í 4 stærðum: 1 (hentar 34/36-38), XS (hentar ca 36/38-40), S (40-42/44) og M (44-46/48)
Við mælum með 30°C þvotti og vinsamlegast ekki nota þurrkara. Eins bendum við á að nota ekki gróf hálsmen eða annað sem gæti rifið upp efnið og látið það byrja að hnökra.
Efnisblanda: 92% Polyester, 8% Spandex.
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er gframkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Sendingarkostnaður
DROPP
Dropp afhendingarstaðir á Höfuðborgarsvæðinu 750 kr
Dropp afhendingarstaðir á Suðvesturhorninu 990 kr
Dropp afhendingarstaðir á Landsbyggðinni 990 kr
Flytjandi á Landsbyggðinni 1.350 kr
Heimsendingar á Höfuðborgarsvæðinu 1.350 - 2.350 kr
Heimsendingar á Suðvesturhorninu 1.450 - 2.950 kr