Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fata- og skartgripahönnuður hefur hannað fyrir hönnunarstúdíóin KOLBRUN frá árinu 2012 og VAKIR frá árinu 2018.
Kolbrún er mikill umhverfissinni og leggur metnað sinn í að hanna út frá umhverfisvænum leiðum.
Skartgripirnir frá KOLBRUN eru unnir úr endurnýttu skarti sem hún hefur safnað frá skúffum íslenskra kvenna og gefið því nýtt framhaldslíf.
Öll menin frá KOLBRUN eru einstök.