Hér má versla húfur, hárbönd eða hálskraga allt í sitthvoru lagi eða sem sett.
Hulsurnar eru úr mjúku efni og eru einskonar hringkragar. Ss. saumaðir í hring og geta því legið sléttir niður eða snúnir upp í þrengri kraga.
Húfurnar eru sætar og klassískar.
Hárböndin eru tekin saman að framan í smá hnút sem okkur finnst sérstaklega kvenlegt og sætt.
Við mælum með 30°C þvotti og hengið upp til þerris frekar en að nota þurrkarann, hann fer aldrei vel með flíkurnar.
Blanda: 100% polyester
ATH. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Einnig er hægt að ath með lagerstöðu áður en pöntun er framkvæmd á opnunartíma í síma 5880100 eða í gegnum systurogmakarrvk@gmail.com
Ef ekki er hægt að sauma í pöntunina bjóðum við þér aðra vöru, inneign eða fulla endurgreiðslu.
Takk fyrir að styðja við íslenskt atvinnulíf- íslenska hönnun og framleiðslu.