Aðventudagatal- sniðug verkefni og meiri samvera!
Við systur létum prenta fyrir okkur jóladagatal fyrir nokkrum árum í þónokkru upplagi og eigum enn örfáa pakka í brúna náttúrulega pappírnum. Okkur langaði svo í hreina miða með gati úr ágætlega stífu kartoni sem hægt væri að nota fyrir allskonar aðventu-dagatals pælingar.
Um er að ræða brún náttúruleg spjöld úr kvistpappír með svörtu prenti.
Tölustafirnir eru misjafnir svo spjöldin raðast skemmtilega upp þegar þeim er raðað á sinn stað.
Hægt er að nota þau á ýmsa vegu, þau má til dæmis hengja á litla poka með gjöfum sem er krækt á band eins og sjá má hér:
Fallegt er að binda smá borða utan um þau og festa utan um tómar sultukrukkur með sprittkerti og svo er kveikt á nýju kerti á hverjum degi. Þetta kemur ofsalega vel út í glugga! (Athugið að þið munið þurfa 300 kerti í krukkurnar í heildina miðað við að kertin lifa í einn dag hvert).
Einnig er hægt að festa þau á vegg og nota þau sem viðburðardagatal:
Þetta finnst mér æðisleg hugmynd afþví það þarf ekki endilega að vera búið að setja gjafirnar í poka, þær geta verið í formi samverustunda með fjölskyldunni alla aðventuna. Verkefnin þurfa ekki alltaf að vera flókin og hér er smá listi með nokkrum skemmtilegum hugmyndum
- Förum í skautaferð
- Eldum saman eitthvað gott í matinn
- Bökum piparkökur
- Spilum spil
- Föndrum jólakort
- Förum í bakaríið og kaupum snúð
- Búðarferð á Laugaveginn
- Kíkjum á kaffihús og fáum okkur heitt súkkulaði
- Skreytum úti-tré með seríu
- Förum á jólatónleika
- Laufabrauðsbakstur
- Föndrum jólaskraut
- Kíkjum í jólahúsið
- Förum í bíltúr að skoða jólaljósin
- Bökum smákökur
- Horfum á jólamynd saman
- Höldum fjölskylduspilakvöld
- Verslum jólagjafir
- Förum í göngutúr að skoða jólaljós
- Fáum okkur heitt kakó og smákökur
- Finnum jólatré
- Verslum í jólamatinn
- Búum til snjókarl
- Skreytum jólatréð
- Förum í jólabaðið
- Byggjum snjóhús
- Fáum okkur jólabjór (svona fullorðins ;)
- Föndrum aðventukrans
- Lærum um jólahefðirnar
- Skoðum erlendar jólahefðir
- Pússlum jólapúsl
- Finnum og pökkum inn jólum í skókassa
- Förum í jólamessu
- Lesum jólasögu
- Skrifum jólasögu
- Lesum jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum
- Lærum um aðventukertin fjögur
- Bjóðum vinum í jólakaffi
- Föndrum krans á leiðin
- Búum til jólakonfekt
Og svo mætti lengi telja! Hugmyndirnar geta verið úr öllum áttum og ef þér dettur fleira í hug má endilega skrifa það hér í commentin að neðan svo aðrir geti nýtt sér þær!
Aðventudagatölin fást hér á netversluninni á 1900.- pakkinn en hægt er að versla með því einfaldlega að ýta á myndirnar eða kíkja í búðina okkar í Síðumúla.
Ef þér líkaði þessi póstur væri dásamlegt ef þú vilt vera yndi og deila :)
Verið góð við hvort annað kæru vinir!
Sköpum okkar eigin hamingju, kveðja Katla.
- Systur & Makar –
Hægt er að fylgjast með okkur á Instagram, Facebook, Pinterest og Twitter
Skráið ykkur endilega einnig á póstlistann okkar hér fyrir ofan til hægri
Veljum íslenska hönnun og íslenska framleiðslu!
Skilaboð

CxSAtFynZdvIsYH

EQwnjkoAsDFcieSY

joBgEKWsZQJPyf

YQIdVSnoq

AMRdXcWJpYQnfez

AjhwQcagFsJploHT

GlriHSIgaPx

mXNSxTGavsUB

RngWcwOG

zvumapCis

maglie calcio bambini poco prezzo Mel Margaret Maglia Italia Bambino JanieKin KatrinaF Mel

nye fotballdrakter Venus Josefina Dortmund Drakt Barn JasonVal Kristine Venus

fodboldtrøjer med navn Mellissa DarwinCo England Trøje Børn AmberDeg KathrynS Mellissa

fussball trikots Ina IrisGood Wolfsburg Trikot DevinLee
HungMini Ina

fotballdrakter 2018 Tania Danielle Frankrike Drakt EugeniaV DickAkht Tania

fodboldtrøjer tilbud Sonya HannaCol Tyskland Trøje GinaBlad DanpfMij Sonya

magliette calcio Carlo CoyAmar Maglia PSG Bambino Shantell StefanCu Carlo

billiga fotbollströja Almeda Changptq Matchtröjor Fotboll
JulioqmN StephanD Almeda

fussball trikots Adam Christia Fussballtrikot Kinder DarnellG SangFock Adam
- 1
- 2