Mar með blúndu er komið aftur!
Mar er einn elsti en jafnframt klassískasti kjóllinn okkar. Hann hefur komið í heilmörgum útgáfum úr mismunandi efnum, með og án prenta.
Mar er léttur og ótrúlega þægilegur kjóll sem margar elska að skella yfir sig til að verða "ready" á núll einni. Hann er flottur við leggings eða utanyfir þröngar buxur.
Hálsmálið er vítt en ekki mjög flegið og stroffin ná upp á miðjan handlegg, hann er sumsé víður, en ekki of víður...
Þessi er með blúnduskurði á öxlunum sem gefur kjólnum fallega rómantískan blæ og hentar hann sem frábær grunnur fyrir margskonar skart og klúta.
Mar er fáanlegur í tveimur stærðum XS (hentar stærðum 36/38-40) og S (hentar stærðum 40-42/44)
Við mælum með 30°C þvotti á þessum
Efnisblanda: 92% viscose 8% elastin.
Hægt er að versla með því að smella á myndirnar :)
Sköpum okkar eigin hamingju og verum góð við hvort annað kæru vinir!
Ef þér líkaði þessi póstur væri dásamlegt ef þú vilt vera yndi og deila!
Katla – Systur & Makar –
Hægt er að fylgja okkur á Instagram, Facebook, Pinterest og Twitter
Einnig bendum við á póstlistann okkar hér.
Veljum íslenska hönnun og íslenska framleiðslu!